Auðtrúa gríslingar og annað gott fólk
Myndir
Dagsetning
8. febrúar 2012
27.11.2007 21:41:35 / silja

Ný síða

Er háð breytingum og því komin með nýja síðu... http://silja.xblogg.is/  , tékkið á henni. ATH! Ég er búin að laga linkinn svo nú er hægt að klikka beint á hann.


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 20:56:22 / silja

Ráðherrar og flugþjónar

Ég þakka kærlega skemmtilegar athugasemdir en ég ákvað að koma með nýja færslu áður en nútíma skylmingaþrælar yrðu nýjasta æðið. Ekki það að gaman væri að sjá vel vaxna karlmenn sveiflandi sverðum, sveitta og síðhærða á góðu síðdegi.

Annars langaði mig að tjá mig pínkulítið um "ráðherra" umræðuna. Eins og flest öllum öðrum finnst mé tímasóun að reyna að finna að nefni á þennan starfsvettvang en umræðan sem slík er ekki slæm. Getið þið ímyndað ykkur fyrirsögnina "Sigurður Bjólfmundsson tekur við ráðfrúarstöðu heilbrigðisráðuneytisins í næstu viku" ALDREI, ALDREI myndi karlmaður samþykkja að gegna embætti sem bæri kvenlægan titil. Það þykir upphefð fyrir konu að komast í embætti sem frá örófi alda hefur verið karlaembætti og eru þær svo þakklátar að þær vilja engu breyta en um leið og karlmenn fara að koma inn í stéttir áður uppfullar af konum fara þeir fyrst í að laga starfstitilinn að karlmennsku sinni. Ekki lengur flugfreyja heldur flugþjónn, ekki kaffidama líkt og Bjarni Harðar vill reyndar kalla sig, heldur kaffibarþjónn.. hvað um það, þetta er ekki að pirra mig ofboðslega en fúlt samt hvað karlmönnum finnst niðurlægjandi að vera kenndir við kvenstarfsheiti en konur rosa ánægðar að komast í ráðHERRA embætti. En í rauninni er góð þróun að bæði kynin eru að færa sig yfir ímyndaðar vinnulínur samfélagsins. Konur verið samt ánægðar með ykkur og ekki gleyma samt að við erum menn líka, bara kvenmenn. (ekki herrar samt samkvæmt gamalli málvenju)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 20:09:37 / silja

Barnaníðingar og tálbeitur

Smá ráðleggingar til alls þess heiðarlega fullorðins fólk sem vafrar á netinu til að hitta fólk undir aldri, náttúrulega bara til að spjalla. Ef ungmenninu langar að hitta þig skaltu ekki gera það, það er bara barnaníðingar sem gera það, nema náttúrulega þeir sem komu fram í Kompás því þeir hefðu örugglega ekki framið neitt voðaverk né hitt ungmenni ef ekki hefði verið fyrir tálbeitu Kompás. Hinsvegar skaltu láta ráðleggja ungmenninu að vera ekki að hitta ókunnugt fullorðið fólk. Af því að ég er fullviss að það er fullt að heilbrigðu fólki sem vafrar á netinu til að spjalla við fólk undir aldri. Ef einhver skildi ekki kaldhæðnina í þessu má hinn sami láta skoða í sér hausinn. Fullorðið heilbrigt fólk gerir þetta ekki.

Það þarf enginn að segja mér það að mennirnir sem hittu dömuna í þættinum Kompás hafi ætlað sér neitt annað en óheiðarlegt athæfi. Barnaníðingar eru ógeð og djöfulsins kjaftæði er þetta með að þeir hafi haft það svo erfitt!! Einmitt þess vegna ættu þeir að skilja hversu ömurlegt er að láta gera þetta við sig og ættu frekar að leita sér hjálpar því ekki er hægt að skýla sér á bak við það að vita ekki að þetta væri rangt "þetta var gert við mig og ég hélt að svona væri þetta bara búhú". Af hverju í ósköpunum eru þeir þá að fela þetta? Ég fel ekki það sem ég veit að er löglegt..

Allt er þetta sorglegt og ég finn til með þeim sem lenda í hverskyns ofbeldi en ég tel það ekki afsökun til að fremja það seinna meir.. Ég var lögð í einelti af ömurlegu fólki í skóla en í dag er ég ekki dugleg að dæma fólk eða finna að því... Ég veit hvernig það er að vera skotspónn fáfróðs fólks, það er ömurlegt..

Öll dýrunum í skóginum ættu að vera vinir en ég veit ekki hversu vinaleg ég verð ef einhvern kemur illa fram við börn sem mér eru kær..


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 20:20:06 / silja

Fréttir

Vissi ekkert um hvað ég ætti að skrifa, en eftir að hafa horft á fréttir og sagt nokkrum sinnum "er það nú?" eða "gat það verið" hafði ég úr nógu að moða.

Fyrst er að minnast á Guðna sem finnst óskiljanleg þessi fjármálastjórn hjá hálfs árs gamalli ríkisstjórn sem þar af hefur verið þrjá mánuði í fríi. Hann er handviss að þessi efnahagsóstjórn sem ég held að sé semsagt lélegt gengi krónunnar og miklir vextir, sé tilkomin vegna þessa hálfa árs. Ég held hann sé að verða elliær, ætli hann muni ekki að hann sat í þessari ríkistjórn fyrir einungis hálfu ári og þá í ein tólf ár. Ég er nú ekki ráðherra en ég held að margt geti gerst á hálfu ári en ekki að þú eyðileggir efnahag lands svona á einu bretti. Hugsa að það taki tólf ára einurð og vinnu, allavega á jafn gjöfulu landi og Íslandi. 

Svo mætti minnast á frábært gamalt viðtal sem var sýnt við forstjóra Kaupþings sem vildi engan veginn setja tíma á það hversu lengi þeir myndu hafa hagstæðustu vextina fyrir sína viðskiptavini. Aftur og aftur spurði fréttamaður, hversu lengi, hversu lengi og fékk alltaf sama svar: Mjög lengi... gáfulegt viðtal.

Svo í Kastljósinu var ómögulegt viðtal við tvo menn, Snæbjörn formann Smáís eða eitthvað svoleiðis og Svavar sem er eigandi, held ég, Istorrent.is. Aumingja Svavar var ekki mikill ræðumaður og hinn var greinilega eitthvað hallur undir lögregluna, hugsa honum langi að verða löggumann, hann talaði ekki um annað en hversu mikið væri að gera hjá löggunni og að hann skildi hvers vegna ekki væri ennþá búið að ákæra Svavar þrátt fyrir að Smáís hefði kært hann fyrir rúmu ári. Svo spurði Svavar, Snæþór að því hvernig sá síðarnefndi fengi út tölur um % þess efnis sem væri höfundavarið og hversu mikil virði þetta allt væri. Snæþór sá þetta nú bara sjálfur þegar hann fór á síðuna, hann er greinilega góður í að sjá heildarmyndina og prósentur af henni..... Fannst þeir ekki komast vel frá sínu máli. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 13:21:22 / silja

Konur og heimilið

Nú ættu allar húsmæður að vera að horfa á Dr. Phil, en reyndar hafa þær örugglega ekki tíma! Þar er maður sem er að heimavinnandi pabbi, konan er í betra starfi svo hann er heima við og hann er að gefast upp því hann hefur engan tíma fyrir sjálfan sig... hahahhahahahahah gott á hann og núna líklega metur hann það við konuna sína og mömmu hversu mikið þær hafa gert í gegnum ævina.

Enn þann dag í dag er konum í rauninni ætlað það hlutverk að bera ábyrgð á heimilinu og börnunum, heyrði einmitt sögu um daginn þar sem vinkona mín var að lýsa því að mágkona hennar kæmi stundum í heimsókn og kvartaði svo yfir draslinu heima hjá henni. Mér finnst harla ólíklegt að mágkonan segi það sama við bróður sinn því það er svo fast í okkur að konan ber ábyrgðina þarna. Sem betur fer þekki ég fullt af fólki sem hefur eða er að reyna að breyta viðhorfi sínu til þessa en það er bardagi. Samfélagið er enn þá fast í viðjum vanans.

Önnur saga af annarri vinkonu minni, hún er byrjuð að strauja skyrturnar hjá manninum sínum því hann er kominn í "flottari" vinnu og "þarf" að vera í vel straujaðri skyrtu (ætla að vona að ég verði aldrei metin á vinnustað eftri því hversu vel ég get straujað;) og ég missti kjálkann niður í gólf og benti henni á að eitt af því fáa sem mamma mín kvartar yfir enn þann dag í dag yfir pabba, en fyrir þá sem ekki vita þá skildu þau fyrir þrettán árum, er að hafa þurft að strauja skyrturnar af pabba alla daga. Ég segi stundum að mamma hafi skilið við pabba vegna þessa og að pabbi hafi fyrst keypt sér straufríar skyrtur eftir að þau skildu og líkar ágætlega, honum datt það bara ekki í hug því hann átti alltaf fínt straujaðar skyrtur í skápnum. Þessi vinkona mín er með gáfaðri manneskjum sem ég þekki og er að vinna að sínum ferli líka, er í krefjandi vinnu, leggur mikið á sig til að ala upp barnið sitt og þegar ég kem til hennar líður mér eins og hún geri ekkert annað en að þrífa því heimilið lítur alltaf vel út. Svo er hún byrjuð að strauja!! Eins og hún hafi ekki nóg að gera. Vil bara ítreka fyrir hana, því kannski les hún þetta að ég er ekki að gera grín að þessu, bara að benda á það hversu algeng hugsun það er að konur eigi að hafa tíma til alls.


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 20:09:05 / silja

Önnur færsla

Verð að tjá mig meðan ég man. Nú liggur fyrir frumvarp í skrilljónasta skipti frammi Alþingi um að leyfa sölu léttvíns í búðum. Þeir sem þekkja mig vita að ég vil flest allt frjálst en ekki er hægt að horfa fram hjá því að jafnvel ég vil að ríkið aðstoði þá sem misnota áfengi. Til að aðstoðafíkla þarf gríðurlega fjármuni. Með einkasölunni fær ríkið talsverða fjármuni sem hægt er að nota í meðferðir eða forvarnir.

Hægt væri að koma með rökin, "af hverju á ég að borga meira til að borga meðferð annars?" Svar: Af því að það er samfélaginu í hag, ef fólk fengi enga hjálp myndum við verða þess óþyrmilega var með tímanum. Ég er samt fylgjandi því að fólk taki afleiðingum gjörða sinna, ef þú ætlar að drekka þá verður þú að horfast í augu við það að þú gætir orðið alkóhólisti en ég er eiginhagsmunaseggur og ég vil ekki hafa fyllibyttur alls staðar fyrir augunum, ég vil að þeim sé hjálpað.

Persónulega vil ég samt áfengi í búðirnar, þoli ekki að langa í bjór eða hvítvín með matnum og það er lokað í ÁTVR. Kannski getur ÁTVR bara sett upp sjálfsala fyrir mig?


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 13:02:46 / silja

Fótboltabullur = barnaskapur

Jæja enginn sem vill ráða mig í vinnu... ég fer þá bara að sjá um heimilið...

Munið þið eftir því í barnæsku þegar verið var að spila eitthvað og einn tapaði, hvenrig hann varð tapsár og þá var hann kallaður smábarn, að grenja yfir að tapa í leiknum.

Kannski, kannski ekki.. hvað með það. Ég verð að segja eins og er að ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur þegar hópur fólks ræðst af öðru fólki af því að þeirra lið vann leikinn, og með áherslu á LEIKINN... og þá er ég að vísa í aðdáendur íslenska landsliðsins þegar þeir réðust að lettneskum aðdáendum eftir að þeirra lið vann Íslendinga.

Talandi um barnaskap og tilgangsleysi, fótbolti er ágætur en ef hann hefur það mikil áhrif á þitt líf að þig langi til að meiða fólk vegna hans, þá er eitthvað að.... Hver vinnur leikinn hefur enginn úrslitaáhrif, það verður leikur eftir þennan leik...


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 14:50:51 / silja

Vinnuleit hafin og í fullum gangi

Til bróðurs míns sem kom með ábendingu við seinastu færslu: Ég var að tala um 70% af nettó tekjum, ég tala alltaf í nettó tekjum því mér finnst ég ekki vera að fá neitt meira en það. Ekki að missa mig yfir því hvernig skattpeningum er eytt...

 Að öðru, ég verð atvinnulaus eftir tvo mánuði og ég auglýsi hér með vinnu. Ég hef ýmsa hæfileika, er vel tennt og afar stundvís. Er meðal annars góð í Trifjal pursjút og tala mjög góða ensku. Hef þurft að starfa með alls konar fólki og á með afbrigðum gott að vera í alls konar samskiptum. Skipulag er mitt millinafn þó ég sé ekkert að flíka því. Ég kann að pikka og jafnframt að skrifa góða íslensku svo og ensku.

Aðalkostur minn er þó auðvitað óstjórnlegur fróðleiksþorsti og afkastamikil dagskrá þegar kemur að skemmtilegheitum. Hef fáa sem enga galla.

Svo ef þið vitið um starf sem hentar fyrrtöldum eiginleikum, endilega látið mig vita...


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 21:00:39 / silja

Peningar og aftur peningar

Ég þakka fyrir góð komment við síðustu færslu.

Í dag langar mig að minnast aðeins á hversu sjúkt okkar samfélag er orðið. Maður þarf að borga 70% af laununum sínum í húsnæði, og afgangangurinn fer í gamlar skuldir eða náttúrulega mat. Ég hringdi í gær í bankann til að athuga heimilidina fyrir VISA kortið mitt, hélt að það væri eitthvað bara pínu, komst að því að ég mætti eyða fyrir rúmlega hálfa milljón.. ég manneskja með undir 200.000 í laun!! Ekki það að ég á að passa mína eyðslu og ég hef ekki áhyggjur af því að fá hálfrar milljóna króna reikning um næstu mánaðamót en að þeir skuli gera ungu fólki þetta kleift er algjörlega út í hött...

Hvað um það, við vitum þetta, þeir ríkuru verða ríkari og þeir fátækari fátækari... mitt starf er miklu minna virði greinilega heldur en þeirra sem vinna í fyrirtækjum þar sem liggur við að eina markmiðið er að búa til meiri peninga fyrir eigendurna... Ég sé um það daglega að passa og uppfræða framtíðina, hvað er mikilvægara?


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 20:20:32 / silja

Hrósdagurinn mikil

Í dag ætla ég að hrósa.

Í fyrsta lagi ætla ég að hrósa Írönum fyrir að ákveða, allavega opinberlega, að vinna með alþjóðakjarnorkumálastofnunni og vonandi með því að koma í veg fyrir stríð að minnsta kosti um tíma sakir. Reyndar segir góður maður að þeir séu bara að þessu til að kaupa sér tíma svo þeir geti framleitt massa af kjarnorkusprengjum til að sprengja upp okkur trúvillta. Kannski svo en ég er svo bjartsýn, vona bara að þeir hafi séð að stríð myndi ekki hafa neitt upp á sig.

 Í öðru lagi ætla ég að hrósa mótmælendunum á Kársnesinu, smekklega gert og þið höfðuð áhrif að því er virðist. Yfirvöld í Kópavogi fá líka prik fyrir að taka mark á þessu. Líklegast þykir mér þó að eitthvað hafi orðið til þess að framkvæmdirnar hafi ekki verið bæjarstjórninni í hag og þess vegna hafi þeim veirð frestað.

 Síðast en ekki síst fær Hrund Þórsdóttir stjórnmálafræðingur stórt hrós fyrir að hafa skrifað unglingabók og unnið til íslensku barnabókarverðlaunanna:) Vel að verki staðið....

 Jæja dúllurnar mínar, ef þið hafið hrós einhverjum til handa þá endilega setjið það hérna í comment....

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 13:57:35 / silja

Stríð og friður er merki mitt...

Pabbi minn vill bomba Íran áður en þeir bomba okkur. Það er skoðun í sjálfum sér og hann treystir sem sagt ekki öfgafullu múslimunum sem eru þar við völd til að eiga kjarnorku. Systir mín benti honum nú réttilega á að eina þjóðin í heiminum sem beitt hefði kjarnavopnum væru stríðsglöðu ameríkumennirnir og það ekki einu sinni heldur tvisvar.

Það sem mig langar að segja er að ég skil það að vera hræddur við þessa ógn sem fylgir kjarnorkuvopnum en það að vera svo hræddur um að eitthvað gerist leiði til þess að maður fremur voðaverknaði til að koma í veg fyrir það tel ég ekki réttu lausnina. Þeir sem fara verst út úr stríðum eru börn og konur ekki hermennirnir hugrökku sem margir hverjir velja að fara í herinn og þá á ég einna helst við um USA brjálæðinga.

Öll börn eiga rétt á lífi alveg sama hverjir foreldrar þeirra eru. Við megum heldur ekki gleyma að þrátt fyrir að það lifi öfgafullir múslimar í Í- ríkjunum þá lifa ekkert minna öfgafullir kaþólikkar í B- ríkjunum. Við höfum ekki rétt á að bomba lítil börn af því að við erum hrædd um að ráðamenn í landi þeirra geri eitthvað ljótt af sér. ´

Mig langar bara að viðurkenna það hér og nú að ég er skíthrædd við alla þessa geðveiki í kringum ofsatrú alveg sama hvar hún er viðhöfð, ég er alveg jafn hrædd um að Runninn starti stríði sem ekki endar vel og að ráðamenn í Í-ríkjunum bombi mig.

Notið trúna á fallegan hátt, ekki til að hata heldur til að elska líkt og er boðað held ég í öllum trúarbrögðum ef frá er talin djöfladýrkun...

Ég geri mér grein fyrir að eitt boðorðið í kristinni trú segir að þú skulir bara einn guð hafa, það stendur hins vegar ekkert um að ef þú hitti manneskju sem ekki trúir á þinn guð eða trúir á marga guði þá skulir þú misþyrma henni játi hún ekki trúvillu.

Stríð er aldrei lausn bara heimskuleg framvinda mála milli nokkurra manna sem eru haldnir mikilmennskubrjálæði á háu stigi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 21:43:20 / silja

Úrslit kosninga

Ég hef komist að því eftir að hafa lesið úr úrslitum hinna mjög svo vísindalegu skoðanakönnunum mínum að lesendur þessa bloggs hafa mikinn áhuga á að rækta græna fordómalausa einvalda með mig sem aðstoðarmann í friðarsamfélagi án fegurðasamkeppna þar sem allir væru góðir vil alla. Ég læt úrslit kosningana fylgja hér með ef einhver í ósköpunum hefur áhuga:)

Annars er allt fínt að frétta, ég er byrjuð aftur að vinna og sumarið sem aldrei kom er búið.....

 

Heimurinn væri betri ef... (10 atkvæði)

Allir væru grænir á litinn 50%

Ef þyngdarlögmálið væri ekki til 30%

Ef Gunnar í krossinum hefði rétt fyrir sér 10%

Ef karlmenn væru ekki til 10%

Ef kvenmenn væru ekki til 10%

 Ég vildi að ég væri... (4)

Einvaldur með eina hönd 50%

Skopparabolti 0%

Frida Kahlo (þegar hún var lifandi) 25%

Hægindastóll Heath Ledgers 0%

Bankareikningur Donalds Trump (alltaf að stækka) 25%

 Ef ég ætti Ísland myndi ég banna... (16)

.. fólk með fordóma gegn öðrum kynþáttum og kynhneigð 31%

..að stjórnmálamenn sem ræna frá hinum alm. borgara fengju aftur notaleg störf hjá ríkinu. 25%

.. fólk sem ekkert nennir að gera og kennir öllum öðrum um allt sem gerist slæmt í lífinu. 25%

.. mýflugur 13%

.. bann við geldingu barnaníðinga 6%

 Fegurðarsamkeppnir eru.. (12)

.. góð leið til að fá ungar stúlkur sem eiga erfitt með að ganga á háum hælum hvað þá dansa gera sig 17%

...fornaldarleg leið til að meta verðmæti einhvers? 33%

..Góð landkynning? Á Íslandi er fallegt fólk. 0%

..Er góður stökkpallur fyrir sætar stelpur til að komast í fyrirsætustörf? 25%

..Eitthvað sem bara skiptir mig engu máli hvort er til eða ekki? 25%

 Hvað myndir þú kjósa ef eftirfarandi væri í boði.. (20)

..Jón Ásgeir og loforð um jafna dreifingu auðs. 15%

..Ómar Ragnarsson og loforð um verndun hálendisins gegn flugbrjálæðingum. 0%

.. Dorritt Mousiaeff (eða e-ð;) og loforð um verndun allra hauskúpna 5%

.. Sverri Hermanns og loforð um að gera Ísafjörð að höfuðborg landsins 5%

Geir Ólafs og loforð um að gera lífið fallegra..0%

Björk og loforð um verndun svana 0%

Helga Hósear og loforð um kristnun allrar Evrópu 0%

Árna Johnsen og loforð um námskeið í skjótri peninganálgun 25%

Mig og loforð um eilífa paradís 50%

 Í framtíðinni væri best að...(6)

... .. banna karlmenn, með nýrri tækni verða þeir óþarfir fyrir fjölgun mannkynsins 0%

.. halda áfram með agalausa stefnu í uppeldi barna og gerast sem slík tilraunverkefni hjá Kára, erfðfræðingi 0%

.. banna peninga og koma á fót aftur vöruskiptakerfi 17%

.. ekki neitt  0%

..Að flytja til mars og stofna þar friðarnýlendu0%

.. Fá fleiri Runna til valda og láta þá útrýma hvor öðrum, syngja svo skátasöngva og lifa hamingjusöm til æviloka 17%

.. vera góð við hvort annað, elska friðinn og stjrúka kviðinn 67%

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 12:14:25 / silja

Seinasta í bili!!

Seinasta skoðanakönnunin í bili!! Allir að kjósa eitthvað og svo set ég inn úrslit þeirra eftir smátíma:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 22:27:37 / silja

Ný skoðanakönnun

Mig langar til Spánar.. eða Hawaii.. eða einhvers staðar þar sem það telst ekki undravert þó það komi heil vika í senn þar sem sólin skín eða hitinn fer ekki undir 15 gráður....

Smá hrollur að setjast að fyrir veturinn:$  En allavega, það er komin ný könnun, munið að kjósa!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 00:01:52 / silja

Ný skoðanakönnun

Ég biðst afsökunar á að hafa verið svona lengi að setja inn nýja skoðanakönnun en ég hef verið í sveitinni á Klaustri að sinna tjaldsvæðaskyldum og þar er ekki gott internet samband:)  Það eina sem mig langar að kommenta um undanfarna viku fyrir utan að hún var bara askkoti fín, er að eftir að hafa verið að þrífa klósettin þarna hef ég komist að því að það hlýtur að vera einhvers konar heimsmeistarakeppni í gangi hjá kk að dreifa skapahárum sínum á sem flesta staði og get ég þá trúað að sá vinni sem finnur frumlegasta staðinn.

Takk fyrir góða þáttöku í skoðanakönnununum og vonandi nennið þið að halda áfram að kjósa, þessu lýkur senn8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5